Mjög svo ekki öflug í blogginu þessa dagana!
Komiði sæl og blessuð!!
Eins og þið sjáið er ég ekki beint hin öflugasta í þessum blessuðu bloggksrifum, en vonandi batnar það bráðum þar sem ég, Helena, Eva og Linda erum að spá í því að gera bloggsíðu saman ;) ráðlegg ykkur að bíða spennt eftir því!!
En jæja eins og flest allir vita er skólinn byrjaður. Hugsunin við það að vera komin á annað ár í menntaskóla er mjög skrítin, en svoleiðis er það víst! Er eiginlega bara í sama bekknum fyrir utan smávægilegar breytingar - einhverjir hættir, einhverjir sem skiptu um bekk og nýir komu í staðinn...
Svo hef ég fréttir að færa ;D gamlar að vísu en ég læt vaða! Bergdís besta besta besta systir og hann Einir búa nú hér heima og er það ekkert annað en yndislegt að hafa hana í húsinu. Ég saknaði hennar svo mikið þegar hún bjó í Eyjum í sumar þannig að það er frábært að hún sé komin heim!!
Önnur serían af The O.C er nú byrjuð á Skjá einum, öllum eflaust til mjög mikillar gleði! En þar sem ég varð svo forvitin eftir fyrsta þáttinn í þessari nýju seríu, var Elvar maðurinn hennar Berglindar svo yndislegur að copera alla seríuna fyrir mig á disk =D ég er semsagt búin að liggja yfir þessum mjög svo tilfinningaþrungnu þáttum núna í meira en viku!!

1 Comments:
iss piss...veistu mér finnst ein færsla á mánuði ekki vera mikið afrek! HA!? HA!? HA!?!?!?!?!
Sendu inn athugasemd
<< Home