05 júlí 2005

Einhverntíman er allt fyrst ;)

Jæja þá er ég komin heim í Kópavoginn eftir ferð mína til Vestmannaeyja, fyrstu ferð mína en ööörugglega ekki þá síðustu!!

Ferðlagið byrjaði á föstudaginn þar sem ég tók flug til Eyja. Var komin þangað um korter í eitt og þá biðu Bergdís og Einir úti á flugvelli eftir mér =D æðislegt að sjá þau aftur, þó sérstaklega hana Bergdísi mína. Þar á eftir tók smá bíltúr við þar sem þau sýndu mér eyjuna flottu ;) Dagurinn leið og ég held að ég og Bergdís höfum heyrt alla sem við hittum segja: "Váá hvað þið eruð líkar" jájájá tjaa ég bara veit ekki, hver dæmir bara fyrir sig ;p Um kvöldið elduðum ég og Bergdís kjúkling a la mamma og líkaði öllum vel =D Síðan komu vinir þeirra í heimsókn og svo var bara skriðið undir sæng með DVD í tækinu ;)

Á laugardeginum var brjallað margt og mikið. Við kíktu á Sparisjóðhátíðina niðri í bæ og fengum pylsu/pulsu, fórum að bíltúrast, horfðum á fótboltaleikinn ÍBV - Fylkir - en ég og Bergdís létum okkur hverfa eftir 30 mínútur og fórum í Ísjakann og fengum ís =D Um kvöldið var svo farið heim til vinar Bergdísar og Einis og svo þaðan niður í Skvísusund. Þar var brjáluð stemming, fullt af fólki og tónlist útum allt - meðal annars hann Árni nokkur Johnsen ;) Eftir mikið spjall við fullt af hressu fólki og nokkur dansspor héldum ég og Bergdís heim á leið - tja nokkuð seint fyrir ódjamm-manneskju eins og mig ;p

Á sunnudeginum var grenjandi rigning og brjálað rok allan daginn. Ég og Bergdís fórum eftir kvöldmatinn og ég keypti mér Crépes á Café Maria og svo fórum við bara að horfa á vídjó með nokkrum vinum þeirra seinna um kvöldið. Svo vaknaði ég þreytt snemma á mánudagsmorguninn til að fara útá flugvöll og fljúgja beinustu leið heim eftir skemmtilega ferð ;)

2 Comments:

Anonymous Bergdís og Einir said...

Takk æðislega fyrir frábæra helgi Ásdísin okkar...vonandi kemuru fljót aftur =c*
með kveðaju frá eyjunni fögru ;)

9/7/05 00:44  
Blogger ~Ásdísin said...

Takk sömuleiðs, fyrir að leyfa mér að vera og fyrir allt bara =D kem alveg pottþétt aftur *blikk blikk* haha

9/7/05 00:57  

Sendu inn athugasemd

<< Home