Sól og sumarfrí??
Jújú sólin er búin að vera ansi dugleg að láta sjá sig undanfarna daga en sumarfríið, það er annað mál! Ég er búin að vera að vinna frekar mikið núna alveg síðan skólinn hætti...já ég held að ég geti nú ekki kallað þetta mikið sumarfrí =S En svona er þetta...
Kvöldið [eða það sem er búið af því ] er búið að vera frekar dapurlegt..jébbs jébbs! Ég er bara búin að vera ein heima, eins og reyndar alla síðustu viku, en núna er ég alveg aaaaalein! Vinkonurnar allar að gera eitthvað annað, uppteknar eða hreinlega hafa ekki tíma í augnablikinu...nema ég auðvitað..örugglega eina manneskjan sem sit ein heima á þessu líka yndislega laugardagskvöldi að gera ekki neitt, ekki skemmtilegt skal ég segja ykkur!!!
Ætli séu einhver takmörk fyrir því hve mikið manni leiðist?

1 Comments:
nei veistu, ég er búin að komast að því að það sé hægt að leiðast alveg endalaust mikið... eða þangað til að maður missi vitið!
Var á þeim m0rkum um daginn :P
Sendu inn athugasemd
<< Home