15 júní 2005

Mí kasa, sú kasa!

Hmm jæja..svolítið síðan ég bloggaði síðast. Ekki neitt mikið búið að gerast hjá mér undanfarið nema það að hún Bergdís systir er kominn í bæinn ;D hún hefur tekið sé smá frí frá Eyjunni og ákvað að kíkja í heimsókn, en hún fer nú samt aftur á fimmtudaginn eða föstudaginn.

En annars skelltum við skutlurnar okkur í bíó í kvöld. Fórum að sjá Monster in law og jújú hún var góð eins og í fyrra skiptið. Jáááá ég var að fara í annað skiptið á þessa mynd, búin að fara svolítið oft í bíó undanfarið oggg þar af leiðandi búin að sjá allar myndir í bíó sem mig langar til að sjá...

Núna sitjum við Bergdís bara uppí rúmi, báðar með sitthvora fartölvuna og höfum það gott ;)

1 Comments:

Blogger hildurin said...

hæ skvís!
ú þú dugleg að fara í bíó! Ég er ekki búin að sjá eina einustu mynd sem er í bíó núna I kid you not!
Verð að fara að gera eitthvað í þessu hmm...

22/6/05 19:52  

Sendu inn athugasemd

<< Home