28 júní 2005

Eyjar á föstudaginn!!

Veriði sæl ;)

Þá er ég sest hér fyrir framan tölvuna aftur og ég ætla að reyna að blogga e-ð smá.
Svosem ekkert mikið að frétta af mér, bara búin að vera að vinna og vinna og vinna og vinna. Svosem alveg fínt bara ! Hlakka til að fá útoborgað ennnn þeim peningum verður ekki eytt í einhverja vitleysu neineinei ég ætla að reyyyna að spara aðeins svo ég geti nú kannski keypt mér BÍL! Jáhá hvort að það verði fyrir áramót, eftir áramót, næsta sumar eða næsta haust kemur allt í ljós =]

Á föstudaginn verður mikið gaman og mikið fjör! Þá er ég sko að fara til EYJA í mitt fyrsta sinn að hitta Bergdísi mína og hann Einir ;) Hlakka alveg ótrúúúúlega mikið til að hitta þau bæði tvö!!...og svo auðvitað að kynnast einhverju nýjufólki vonandi!! Goslokahátíðin er víst núna um helgina og þá er eitthvað voðalega mikið að gerast.

Þetta verður semsagt “fyrsta sumarfríið mitt” þetta sumarið ;)