31 maí 2005

Góður dagur í dag!

Sæl veriði..
..núna ætla ég að reyna að blogga eitthvað smá hér ;)

Síðustu vikur og dagar eru búnir að vera alveg ágætir bara...
Miðvikudaginn 25.maí fór ég og sótti einkunnirnar mínar og jújú þær voru alveg ágætar, tvær fimmur, tvær sjöur og 4 áttur. Var kannski ekki alveg nógu sátt með fimmurnar en maður reynir bara að gera betur næst ;)
Þannig að, núna er fyrsta ári mínu í menntaskóla lokið!! Fyndin tilhugsun þar sem mér fannst svo stutt síðan ég byrjaði..en svona er þetta, allt svo fljótt að líða, sérstaklega þegar maður skemmtir sér vel ;D


Ég er komin með bílpróf!!

Jéss jéss rétt er það! Ég er farin að keyra um allan bæinn eins og bjálæðingur og búin að fara í tvo ísbíltúra =D skemmtilegt það. En því miður er ég ekki búinn að fara með henni Helenu minni í bíltúr þar sem hún stakk af til Flórída 27.maí. Ég sakna hennar ekkert smá!! En hún kemur nú heim 5.júní og þá verður sko farið í einn laaaaangan ísbíltúr! Pottþétt ;)

Síðustu daga er ég bara búin að vera að vinna í Veröldinni ;) fínasta fínt bara! Stundum vildi ég samt að ég væri að vinna útivinnu...þangað til í dag þegar ég var á leiðinni heim úr vinnunni í greeeenjandi rigningu! Aumingja krakkarnir sem eru að vinna í bæjarvinnunni var það fyrsta sem ég hugsaði ;p

Í dag á hann pabbi minn afmæli! =D En því miður er hann í útlöndum, með mömmu og Heiðdísi, þannig að hann á inni hjá mér stórt knús og pakka þegar hann kemur heim!!




ÁsDísin

1 Comments:

Blogger hildurin said...

Úff já, mín var sko fegin að vera ekki að vinna þegar "góða veðrið" kom!
En til hamingju með þessa nýju bloggsíðu! Hún er alveg frábær!
*stór knús*

31/5/05 20:46  

Sendu inn athugasemd

<< Home